

Manchester United hefur samkvæmt enskum miðlum hafnað öllum hugmyndum um að selja Amad Diallo í sumar.
Fílabeinsstrendingurinn hefur verið orðaður við brottför frá félaginu síðustu vikur, en forráðamenn United vilja halda honum á Old Trafford.
Amad, sem er 23 ára gamall, hefur átt erfitt uppdráttar á köflum síðan hann kom til félagsins frá Atalanta árið 2021. Hann hefur þó sýnt mikla takta þegar hann hefur fengið tækifæri og margir stuðningsmenn vilja sjá hann fá stærra hlutverk á næsta tímabili.
Nokkur félög á Englandi og erlendis hafa fylgst grannt með stöðu kantmannsins, en samkvæmt Teamtalk kemur ekki til greina hjá Manchester United að leyfa honum að fara. Félagið telur að Amad geti orðið mikilvægur hluti af framtíð liðsins.