

Orðrómur um erfiðleika í hjónabandi Leandro Trossard, leikmanns Arsenal, hefur farið á flug eftir breytingar á samfélagsmiðlum eiginkonu hans, Lauru Hilven.
Samkvæmt enskum miðlum hefur Hilven eytt öllum myndum af Trossard af Instagram-síðu sinni, þar á meðal brúðkaupsmyndum og fjölskyldumyndum frá síðustu árum. Þá hefur hún ekki birt mynd af sér með giftingarhringinn síðan í desember, sem hefur ýtt undir vangaveltur um að sambandið sé í krísu.

Trossard og Laura hafa verið saman í rúmlega tólf ár og giftu sig árið 2019. Parið hefur áður verið duglegt að deila myndum úr einkalífinu með fylgjendum sínum, meðal annars frá ferðalögum, stefnumótum og fjölskyldustundum.
Heimildarmaður segir við breska fjölmiðla að fólk sem skoði samfélagsmiðla Lauru í dag myndi vart gera sér grein fyrir að þau væru gift.
Þrátt fyrir umræðuna utan vallar hefur Trossard verið mikilvægur leikmaður Arsenal á tímabilinu. Lundúnaliðið er enn í baráttu um bæði enska meistaratitilinn og Meistaradeild Evrópu og Trossard var hetja Arsenal í sigri á West Ham um helgina.
Hvorki Trossard né eiginkona hans hafa tjáð sig opinberlega um málið.