
Enska deildin (e. English Football League) hefur hafið rannsókn á meintum njósnum Southampton á andstæðingum sínum.
Starfsmaður Southampton á að hafa verið staðinn að því að taka upp æfingu Middlesbrough fyrir fyrri leik liðanna í umspili ensku B-deildarinnar á laugardag.
Hann var beðinn um að eyða efninu og yfirgefa svæðið, en Middlesbrough tilkynnti málið í kjölfarið til ensku deildarinnar.
Í yfirlýsingu frá deildinni segir að málið sé rannsakað sem mögulegt brot á reglum deildarinnar. Reglurnar kveða á um að félög megi ekki fylgjast með æfingum andstæðinga þegar innan við 72 klukkustundir eru í leik.