

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru meðal þeirra stórstjarna sem hafa misst milljónir fylgjenda eftir umfangsmikla hreinsun Instagram á fölskum og óvirkum reikningum.
Samkvæmt fréttum missti Ronaldo um 18 milljónir fylgjenda í hreinsuninni, á meðan Messi missti um fimm milljónir.

Þá misstu einnig þekktir einstaklingar á borð við Dwayne Johnson, Selena Gomez, Neymar og Ryan Reynolds stóran hluta fylgjenda sinna.
Instagram hefur ekki tjáð sig opinberlega um þessar aðgerðir sínar en virðast þær einfaldlega vera liður í tiltekt á miðlinum.