fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
433Sport

Kristján Gylfi skorar á þá sem ráða að endurskoða ákvörðun sína – „Gert erfiðara um vik að fylgjast vel með“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 7. maí 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Gylfi Guðmundsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, vonar að ÍTF og KSÍ endurskoði þá ákvörðun sína að spila marga leiki í Bestu deild karla á sama tíma.

Um þetta hefur verið nokkuð rætt en fleiri leikir fara nú fram á sama tíma en á síðustu árum. Sem dæmi fara fimm leikir fram annað kvöld.

Með þessu getur rétthafinn, Sýn, verið með þætti í kringum beinar útsendingar þar sem sýnt er frá öllum völlum á sama tíma.

,Nokkur breyting hefur verið á því hvernig leikjum deildarinnar hefur verið raðað upp. Ljóst er að vinsældir sjónvarpsþátta Sýnar í vetur, þar sem fylgst er með mörgum fótboltaleikjum samtímis og skipt milli valla, eins og tíðkaðist í útvarpslýsingum Rásar tvö á sokkabandsárum höfundar, virðast hafa vegið þungt í þessari stefnubreytingu. Er þessi breyting afar umdeild meðal áhangenda deildarinnar,“ skrifar Kristján í Morgunblaðið í dag.

Kristján segir að fíklar í fótbolta líði fyrir þetta. „Til að mynda annað kvöld eru fimm leikir í belg og biðu og svo einn stakur leikur á sunnudegi. Höfundi sem og öðrum fótboltafíklum sem vilja mæta á völlinn og sjá fleiri leiki beint í sjónvarpi er því gert erfiðara um vik að fylgjast vel með og taka þátt í stemningunni.“

Kristján skorar á fólk að endurskoða þetta. „Höfundur skorar hér með á ÍTF og KSÍ að endurskoða þetta fyrirkomulag og dreifa leikjunum aftur á fleiri daga eins og áður var til hagsbóta fyrir aðdáendur Bestu deildarinnar,“ skrifar Kristján að endingu í Morgunblaðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Aron Pálmars tjáir sig um óveðurskýið sem er yfir Kaplakrika – „Ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið“

Aron Pálmars tjáir sig um óveðurskýið sem er yfir Kaplakrika – „Ég ætla að vona að við séum að halda okkur réttu megin við núllið“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Átök innan herbúða Real Madrid – Rudiger lét hnefana tala inni í klefa

Átök innan herbúða Real Madrid – Rudiger lét hnefana tala inni í klefa
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gæsahúðar ræða Óskars Hrafns vekur athygli – „Kremjum þá eins og skordýr undir sólanum á okkur“

Gæsahúðar ræða Óskars Hrafns vekur athygli – „Kremjum þá eins og skordýr undir sólanum á okkur“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina