fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Má fara í sumar – Engan veginn gengið upp hjá honum í London

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wesley Fofana gæti farið frá Chelsea í sumar, en félagið er opið fyrir því að selja hann.

Félagaskiptasérfræðingurinn Sacha Tavolieri segir frá þessu og jafnframt að Barcelona hafi áhuga á varnarmanninum.

Fofana, sem er 25 ára gamall, gekk í raðir Chelsea árið 2022 frá Leicester á 75 milljónir punda. Hann hefur þó átt erfitt uppdráttar á Stamford Bridge.

Tavolieri segir að verðmiðinn á honum fyrir sumarið sé um 25 milljónir punda. Það á eftir að koma í ljós hvort Barcelona eða annað félag greiði það.

Chelsea þarf líklega að selja nokkra leikmenn í sumar þar sem félagið missir af Meistaradeildarsæti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Verður þetta byrjunarlið Tottenham á næstu leiktíð ef liðið heldur sér í deildinni?

Verður þetta byrjunarlið Tottenham á næstu leiktíð ef liðið heldur sér í deildinni?
433Sport
Í gær

Kári sagður hafa skrifað undir í Laugardal á nýjan leik

Kári sagður hafa skrifað undir í Laugardal á nýjan leik
433Sport
Í gær

Flugeldasýning fyrir utan hótel Atletico í London í nótt

Flugeldasýning fyrir utan hótel Atletico í London í nótt
433Sport
Í gær

Ráðleggur Carrick að selja þennan leikmann í sumar – Vill fjölhæfari leikmann í staðin

Ráðleggur Carrick að selja þennan leikmann í sumar – Vill fjölhæfari leikmann í staðin