
Morgan Gibbs-White gæti náð seinni leik Nottingham Forest gegn Aston Villa í undanúrslitum Evrópudeildarinnar þrátt fyrir meiðsli sín á dögunum.
Miðjumaðurinn hlaut svakalegan skurð sem þurfti sauma eftir harkalegt samstuð við markvörðinn Robert Sanchez í síðasta leik.
Gibbs-White, sem er lykilmaður fyrir Forest, fékk þó ekki heilahristing og gæti því fengið grænt ljós á að spila.
Ákvörðun varðandi þátttöku Gibbs-White verður sennilega tekin eins seint og mögulegt er, í samráði við læknateymi félagsins og leikmanninn sjálfan.
Leikurinn fer fram á Villa Park á morgun, en Forest leiðir 1-0 eftir fyrri leikinn á heimavelli.