
KR birti í dag myndband af hálfleiksræðu Óskars Hrafns Þorvaldssonar, þjálfara liðsins, í leiknum gegn Val í Bestu deild karla á dögunum.
KR vann leikinn 1-4 og staðan var 0-2 í hálfleik. Óskar var sáttur við sína menn en vildi sjá þá gera enn betur í seinni hálfleik, eins og sjá má í ræðunni hér að neðan.
Óskar og hans lærisveinar eru að gera frábæra hluti í upphafi móts, en liðið er með fullt hús stiga á toppnum eftir fimm leiki.
Hér að neðan er ræða Óskars.