

Barcelona vinnur nú að því að halda Marcus Rashford áfram hjá félaginu á láni annað tímabilið í röð.
Viðræður standa yfir við Manchester United en Barcelona vill ekki virkja 30 milljóna evra kaupréttarákvæði sem fylgir núverandi samningi. Í staðinn vilja Katalónarnir annað hvort semja um nýtt lán eða fá kaupverðið lækkað.
Samkvæmt miðlum er ljóst að Barcelona vill halda Rashford og hefur Hansi Flick samþykkt áframhaldandi veru hans hjá liðinu.
Rashford virðist því áfram vera hluti af framtíðaráætlunum félagsins, þó endanlegt samkomulag við Manchester United sé enn ekki í höfn.