

Tottenham Hotspur hefur glímt við ótrúlegt meiðslavesen á þessu tímabili, en félagið hefur nú misst fleiri leikmenn vegna krossbandsslita en það hefur unnið heimaleiki í deildinni.
Þrír leikmenn Tottenham hafa slitið fremra krossband á tímabilinu, Wilson Odobert, James Maddison og Xavi Simons.
Á sama tíma hefur liðið aðeins unnið tvo heimaleiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu, sem undirstrikar hversu erfitt tímabil þetta hefur verið fyrir Lundúnaliðið.
Meiðslin hafa haft gríðarleg áhrif á gengi Spurs, sem hafa átt erfitt uppdráttar bæði heima og að heiman.
Staðan hefur vakið mikla athygli meðal stuðningsmanna félagsins, enda sjaldgæft að slíkur samanburður sé jafn sláandi.
Tottenham situr í fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir af deildinni.