
Töluvert hefur verið rætt og ritað um að Myles Lewis-Skelly gæti farið frá Arsenal í sumar vegna skorts á spiltíma.
Bakvörðurinn ungi kom eins og stormsveipur inn í aðallið Arsenal á síðustu leiktíð en hefur fengið mun minna hlutverk á þessari leiktíð.
Á dögunum var hann nokkuð mikið orðaður við Manchester United, þar sem hann fengi án efa stærra hlutverk. Í erlendum miðlum í dag er hann mátaður við erkifjendur Arsenal í Tottenham.
Það er þó talið að Arsenal myndi ekki selja Lewis-Skelly fyrir minna en 60 milljónir punda.
Ekki er víst að Tottenham geti eða sé til í að verja svo miklum fjárhæðum í hann.
Þá er algjörlega ljóst að liðið þarf að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni til að það sé möguleiki, en það er sem stendur í fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir.