

Jose Mourinho er sagður vera helsti kostur Florentino Perez til að taka við sem næsti knattspyrnustjóri Real Madrid.
Stuðningur við ráðningu Mourinho er þó ekki einróma innan félagsins, en forsetinn er sagður leiða ferlið og þrýsta á um að Portúgalinn verði ráðinn.
Mourinho, sem er 63 ára, er því orðinn sterkur kandídat þrátt fyrir skiptar skoðanir innan herbúða Real Madrid. Alvaro Arbeloa stýrir Real nú tímabundið en Mourinho gæti nú fengið aftur tækifæri á Bernabeu.
Samkvæmt heimildum er uppsagnarákvæði í samningi hans við Benfica upp á um þrjár milljónir evra, sem Real þyrfti að greiða til að fá hann.
Mourinho stýrði áður Real Madrid á árunum 2010 til 2013 og vann meðal annars spænska meistaratitilinn með félaginu.
Næstu vikur gætu skorið úr um hvort hann snúi aftur á Santiago Bernabéu.