

Melissa Satta vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum á dögunum þegar hún birti myndir úr sólarfríi sínu í hitabeltinu.
Satta, sem er fertug og starfar sem sjónvarpskona og fyrirsæta á Ítalíu, deildi myndum af sér á ströndinni þar sem hún naut frísins í bikiníi. Færslurnar hafa vakið mikla athygli meðal fylgjenda hennar, en hún er með yfir 4,7 milljónir fylgjenda á Instagram.
Ítalinn hefur undanfarið einbeitt sér að störfum sínum við umfjöllun um Kings League á Ítalíu, en ákvað að taka sér hlé frá vinnu og njóta frídaga.

Satta er einnig vel þekkt fyrir hreinskilni sína í fjölmiðlum og vakti áður heimsathygli þegar hún ræddi opinskátt um samband sitt við fyrrverandi eiginmann sinn, Kevin-Prince Boateng.
Hún hélt því fram að tíð meiðsli Boatengs á sínum tíma mætti meðal annars rekja til mikils kynlífs í sambandinu.

„Ástæðan fyrir því að hann er alltaf meiddur er sú að við stundum kynlíf sjö til tíu sinnum í viku,“ sagði hún eitt sinn í viðtali sem vakti mikla athygli.
Boateng og Satta voru eitt umtalaðasta par Evrópu á sínum tíma, en þau skildu síðar eftir margra ára samband.
Satta var nýverið einnig í sambandi með tenniskappanum Matteo Berrettini, en þau slitu sambandi sínu árið 2024. Hún virtist vera með nýjum unnusta í sumarfríinu.
Melissa hefur lengi verið ein umtalaðasta sjónvarpskona Ítalíu og vekur reglulega athygli með færslum sínum á samfélagsmiðlum. Nýjustu myndir hennar hafa enn á ný farið eins og eldur í sinu á netinu.