

Mikil umræða átti sér stað um breytingu á Bestu deild karla á þessu ári í hlaðvarpi Fótbolta.net, fleiri leikir eru nú spilaðir á sama tíma en áður.
Í stað þess að hafa flesta leiki staka eins og síðustu ár er farið að spila nokkra leiki á sama tíma. Það er Sýn sem er rétthafi deildarinnar sem vildi gera þessa breytingu til að búa til dagskrárgerð í kringum nokkra leiki saman sem hefur fengið nokkuð lof.
„Nú er ég bara stuðningsmaður, ég hætti í sjónvarpi fyrir tveimur árum. Ég er stuðningsmaður Bestu deildarinnar, ég veit ekki hversu oft ég hrósaði Sýn á síðasta ári. Framleiðslan og hvað maður gat séð marga leiki,“ sagði Tómas Þór Þórðarson um málið.
Tómas hélt svo áfram að ræða málið. „Það var hægt að sjá þrjá leiki á sunnudegi, farið á einn leik og tekið tvo í sjónvarpi. Maður gat léttilega séð fjóra leiki í umferð, farið á völlinn sem ég hélt að væri markmið í þessari deild. Maður gat séð í sjónvarpinu, sem er markmið hjá Sýn,“ segir Tómas sem finnst breytingin ekki vel heppnuð.
„Ég get ekki í fljótu bragði séð hvað þessi klessubolti er að gera fyrir deildina. Það var farið í það að slíta þetta í sundur til að hver leikur fengi sitt líf, þetta danska módel. Ég vil taka það fram, ég ætla að vona að maður endi ekki sem DV fyrirsögn. Mig langar bara að vita sem aðdáandi deildarinnar til 30 ára, hver er pælingin?.“
Elvar Geir Magnússon var á sama máli. „Mér finnst margir leikir týnast, fólk ræður ekki við að fylgjast með öllu,“ sagði Elvar.