

Mohamed Salah virðist hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool eftir að hafa meiðst í sigri liðsins á Crystal Palace um helgina.
Samkvæmt upplýsingum frá egypska knattspyrnusambandinu hefur Salah rifið aftan í læri og verður frá keppni í um fjórar vikur. Það þýðir að hann mun að öllum líkindum missa af öllum leikjum Liverpool í maímánuði.
Salah er á förum frá Liverpool í sumar eftir níu ára farsælan feril á Anfield og því lítur út fyrir að hann fái ekki tækifæri til að kveðja stuðningsmenn á vellinum í síðasta sinn.
Þrátt fyrir meiðslin er talið að hann verði klár fyrir Heimsmeistaramótið með Egyptaland síðar í sumar.
Knattspyrnustjóri Liverpool, Arne Slot, hafði gefið í skyn eftir leik að þetta gæti hafa verið síðasti leikur Salah fyrir félagið.
Brottför hans markar endalok stórkostlegs kafla í sögu Liverpool.