

Leikur ÍA og KA, sem fram fer miðvikudaginn 22. apríl kl. 18:00, hefur verið færður inn í Akraneshöll.
„Elkemvöllurinn er ekki leikfær að svo stöddu. Vöxtur á grasinu er ekki nægjanlegur, yfirborðið er óslétt og völlurinn mjög blautur. Ljóst er að leikur á vellinum á þessum tímapunkti gæti skaðað hann til lengri tíma,“ segir á vef ÍA.
Færri áhorfendur munu komast að en vilja, þar sem höllin rúmar einfaldlega ekki allan þann fjölda sem mun vilja mæta.