
Það virðist æ ólíklegra að Barcelona virki kauprétt sinn á Marcus Rashford í sumar, þrátt fyrir fínasta tímabil hans á láni.
Rashford hefur skorað 12 mörk og lagt upp 13 í 43 leikjum, en á þó ekki fast sæti í byrjunarliði Börsunga.
Barcelona getur keypt Rashford á 26 milljónir punda í sumar en samkvæmt fréttum nokkurra miðla er félagið einfaldlega ekki til í það.
Sky Sports segir þá að United haggist ekki hvað þennan verðmiða varðar. Telur félagið sig geta fengið þessa upphæð annars staðar, ef spænska félagið vill ekki nýta ákvæðið.
Það eru engar líkur taldar á að Rashford spili aftur fyrir United, en það sem flækir málin fyrir hugsanleg félagaskipti hans er launapakki upp á 325 þúsund pund á viku á Old Trafford.