
Manchester United hyggst styrkja miðjuna í sumar og hefur sett Mamadou Sangare hjá Lens á óskalista sinn.
Sangare, sem er 24 ára landsliðsmaður Malí, hefur staðið sig vel með Lens á tímabilinu og gæti kostað um 30-40 milljónir punda. Hann hefur skorað þrjú mörk og lagt upp þrjú í deildinni.
United hefur einnig verið orðað við leikmenn á borð við Elliot Anderson, Adam Wharton og Carlos Baleba, en þeir gætu reynst dýrari þar sem þeir spila í ensku úrvalsdeildinni.
Þá eru Chelsea og Juventus einnig sögð hafa áhuga á Sangare.
Breytingar verða á miðjunni hjá United í sumar en Casemiro er á förum og mögulega Manuel Ugarte líka.