fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Tveir klókir Austfirðingar græddu vel um helgina – Annar hlaut 9 milljónir með þessu kerfi

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 13. apríl 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta. Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn.

Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í félaga sínum hjá Hetti á laugardagskvöldinu og sagði frá vinningnum og hvaða kerfi hann hafði notað. Félaganum leist svo vel á kerfið að hann notaði það til að tippa á Sunnudagsseðilinn og viti menn, hann fékk líka 13 rétta og 2.7 milljónir í sinn hlut.

Kerfið árangursríka er R 9-0-1081 þar sem fjórir leikir eru með einu tákni og níu leikir með þrem táknum og Ú merki. Seðillinn kostaði 14.053 krónur.

Þess má geta að báðir tippararnir taka þátt í getraunadeild Hattar en þar keppa 20 lið um meistaratitilinn og leika tvöfalda umferð á sama hátt og leikið er í ensku úrvalsdeildinni. Alls skipa 70 – 80 manns þessi 20 lið. Tipparinn sem fékk 13 rétta vann sinn leik í getraunadeildinni með 13 réttum gegn 10 réttum andstæðinganna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið