fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Telur starf Arteta í hættu ef Arsenal mistekst

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. febrúar 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alan Shearer telur að framtíð Mikel Arteta hjá Arsenal gæti verið í hættu takist liðinu ekki að vinna ensku úrvalsdeildina á þessu tímabili.

Arsenal er í toppbaráttunni en varð fyrir áfalli þegar liðið missti niður 2-0 forystu gegn Wolves og gerði jafntefli á síðustu stundu. Úrslitin hafa aukið pressuna á liðið, sérstaklega þar sem Manchester City andar í hálsmálið.

Shearer segir að þetta sé raunverulegt próf fyrir Arteta og hans menn. „Þeir vinna þetta líklega enn, en þetta verður ekki auðvelt. Ég bjóst aldrei við að Arsenal myndi gera þetta á einfaldan hátt,“ sagði hann.

Hann telur að viðbrögðin í næsta leik, gegn Tottenham, skipti miklu máli. „Það væri frábært svar að fara á útivöll og vinna nágrannaslaginn,“ bætti hann við.

Shearer var þó hreinskilinn um stöðu Arteta. „Ef hann vinnur ekki deildina gæti hann misst starfið. Eftir öll þessi tækifæri og annað sætið síðustu ár, með þá fjármuni sem félagið hefur eytt,  þá verða þeir að vinna titilinn.“

Hann nefndi einnig að Meistaradeildin gæti reynst Arsenal „auðveldari hindrun“ andlega séð, miðað við reynsluna úr deildinni undanfarin ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á

Liverpool setti met í gær – Vantar aðeins tvo staði upp á
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

De Gea aftur til Englands?

De Gea aftur til Englands?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London

Ofurtölvan stokkar spilin eftir viðburðaríka helgi – Þungt fyrir bæði liðin í norðurhluta London
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Þurftu að slökkva á hljóðnemanum í viðtali við Haaland í gær – Myndband

Þurftu að slökkva á hljóðnemanum í viðtali við Haaland í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 2 dögum

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til

Góð frammistaða Íslands gegn Evrópumeisturunum dugði ekki til
433Sport
Fyrir 2 dögum

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“

„Ég er auðvitað mjög náin henni og þetta er einhver hógværasta manneskja sem ég hef kynnst“