fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Haukar staðfesta komu Damir Muminovic

433
Föstudaginn 13. febrúar 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Damir Muminovic hefur verið ráðinn sem einn af aðalþjálfurum 4.flokks drengja hjá Haukum. Hann er leikmaður Grindavíkur en mun einnig þjálfa hjá Haukum.

Damir er einn reyndasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu og hefur spilað í meistaraflokki karla í tæp 20 ár, lengst af í efstu deild karla með Breiðablik hvar hann vann til fjölmargra titla. Á síðasta ári var Damir um tíma á mála hjá DPMM FC hvar hann lék 20 leiki. Damir á fjölda Evrópuleikja að baki og einnig leiki með A landsliði karla og er einmitt í hópnum sem mætir Mexíkó síðar í mánuðinum.

Damir hefur menntað sig í þjálfunarfræðunum undanfarin ár og mun næst klára KSÍ A þjálfaragráðuna. Damir tekur formlega til starfa eftir landsleikinn við Mexíkó.

„Það er gríðarlegur fengur í því að fá Damir Muminovic til starfa. Reynsla hans, þekking og gríðarlegur metnaður mun nýtast drengjunum í 4.flokki og öllu starfi knattspyrnudeildar Hauka vel og hlökkum við mikið til samstarfsins,“ segir á vef Hauka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið