fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

CIty sagt undirbúa að Guardiola hætti í sumar – Þessir þrír eru á blaði

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 14:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester City er sagt vera farið að undirbúa lífið eftir Pep Guardiola og hefur samkvæmt Telegraph sett saman þriggja manna lista yfir mögulega arftaka. Framtíð Guardiola á Etihad er sögð óljós eftir sveiflukennt gengi liðsins.

Samkvæmt Telegraph telja forráðamenn City að Guardiola gæti sagt upp störfum í sumar.

City hefur aðeins unnið einn deildarleik árið 2026 og er nú sex stigum á eftir Arsenal í toppbaráttunni. Liðið gerði jafntefli við Tottenham eftir að hafa misst niður 2-0 forystu, sem jók umræðuna um stöðu stjórans.

Á meðal þeirra sem nefndir eru sem mögulegir arftakar er Xabi Alonso, sem nýlega lét af störfum hjá Real Madrid. Þá er Enzo Maresca einnig orðaður við starfið, en hann hefur áður starfað hjá City.

Loks er Cesc Fabregas nefndur til sögunnar eftir góðan árangur með Como á Ítalíu. Guardiola á samning til 2027, en vangaveltur um næstu skref hans fara vaxandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið