Real Madrid er stórhuga fyrir næsta tímabil og er nú að horfa til Manchester í leit að nýjum miðjumanni.
Þetta kemur fram í AS á Spáni en greint er frá þessu stuttu eftir að Real fékk þær fréttir að Martin Zubimendi væri ekki á leið til félagsins.
Real gerði sér vonir um að fá Zubimendi frá Real Sociedad en hann er við það að ganga í raðir Arsenal.
Real er þess vegna að reyna að fá Rodri, einn besta miðjumann heims, í sínar raðir en hann leikur með Manchester City.
City þarf alls ekki að selja lykilmann sinn en hann er bundinn til 2027 og er nýbúinn að ná sér af erfiðum meiðslum.
Rodri var valinn besti leikmaður heims árið 2024 en hann er Spánverji og var áður hjá grönnunum í Atletico Madrid.