Aston Villa tók á móti Wolves í síðdegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni.
Heimamenn leiddu 1-0 í hálfleik með glæsimarki Moussa Diaby á 36. mínútu.
Um miðbik seinni hálfleiks bætti Ezri Konsa við marki fyrir Villa og þar við sat. Lokatölur 2-0.
Villa er í fjórða sæti deildarinnar, 3 stigum á undan Tottenham sem á leik til góða.
Wolves er um miðja deild með 41 stig.