fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
433Sport

Starfsfólki KSÍ tilkynnt í dag um meint kynferðisbrot Alberts

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 23. ágúst 2023 14:21

Albert er að eiga frábært tímabil með Genoa, þó aðeins hafi hægst á markaskorun undanfarið. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ staðfestir í samtali við DV að sambandið hafi fengið ábendingu um að búið sé að kæra landsliðsmann í knattspyrnu fyrir kynferðisbrot.

Samkvæmt heimildum DV er um að ræða Albert Guðmundsson, knattspyrnumann hjá Genoa. Kona hér á landi hefur lagt fram kæru til lögreglu vegna meints brots Alberts á Íslandi í sumar.

„Ég get staðfest að það kom ábending á okkar borð um kæru vegna kynferðisbrots landsliðsmanns,“ segir Vanda í samtali við DV en vill ekki greina frá nafni leikmannsins.

Vanda segir að starfsmönnum sambandsins hafi verið tilkynnt um málið í dag, en samkvæmt reglum KSÍ má ekki velja leikmann í landsliðsverkefni á meðan mál sem þessi eru á borði lögreglu.

Albert snéri aftur í íslenska landsliðið í sumar þegar Age Hareide tók við þjálfun liðsins en Albert hafði ekki verið í hópnum í heilt ár.

Albert er 26 ára gamall en hann var í byrjunarliði Genoa í leik í efstu deild á Ítalíu um liðna helgi. Albert hefur á ferli sínum leikið í Hollandi og nú á Ítalíu í átján mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Rooney biðlar til United að taka ákvörðun sem allra fyrst

Rooney biðlar til United að taka ákvörðun sem allra fyrst
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Garðbæingar frussuðu úr hlátri þegar Hjörvar Hafliða nefndi þennan möguleika

Garðbæingar frussuðu úr hlátri þegar Hjörvar Hafliða nefndi þennan möguleika
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Hnakkrifust í beinni eftir dramatíkina í gær – Sjáðu myndbandið

Hnakkrifust í beinni eftir dramatíkina í gær – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segir að logið hafi verið að sér – „Svo var ég skilinn eftir“

Segir að logið hafi verið að sér – „Svo var ég skilinn eftir“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?

Sjáðu hvað Beckham gerði í gær og vekur mikla athygli – Voru þetta dulin skilaboð til sonarins eftir stríðið undanfarið?
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sjáðu myndband af ógeðfelldu atviki sem er í mikilli dreifingu – Fleygðu honum niður stiga í gær

Sjáðu myndband af ógeðfelldu atviki sem er í mikilli dreifingu – Fleygðu honum niður stiga í gær