fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Arsenal og Manchester United settu nýtt met á sunnudag

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 25. janúar 2023 18:30

Frá leik Arsenal og Manchester United á þessari leiktíð. Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áhorfsmet var sett í Bandaríkjunum á sunnudag er Arsenal tók á móti Manchester United í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Topplið Arsenal vann dramatískan 3-2 sigur, þar sem Eddie Nketiah gerði sigurmarkið á 90. mínútu leiksins.

Áhorfsmet var sett í Bandaríkjunum yfir leiknum. Aldrei hafa fleiri horft á leik í ensku úrvalsdeildinni þar í landi samkvæmt NBC.

1,92 milljónir manna horfðu á leikinn á rásum á vegum NBC.

Nketiah gerði tvö mörk fyrir Arsenal á sunnudag og Bukayo Saka eitt. Mörk United gerðu þeir Marcus Rashford og Lisandro Martinez.

Úrslitin þýða að Arsenal er með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar, auk þess að eiga leik til góða á Manchester City.

United er í fjórða sæti með 39 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik
433Sport
Í gær

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið