fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Mikilvægi Arons Einars í Katar gríðarlegt: „Ég get alveg sagt það við íslenskan fjölmiðil“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 9. mars 2021 11:02

Aron Einar Gunnarsson. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsþáttur 433.is verður á dagskrá á Hringbraut klukkan 21:30 í kvöld en þátturinn birtist á sama tíma á vefnum og á samfélagsmiðlum.

Í þætti kvöldsins verður Viðar Halldórsson formaður FH í spjalli, Viðar liggur ekki á skoðunum sínum þegar kemur að stöðu íslenska fótboltans.

Freyr Alexandersson aðstoðarþjálfari Al-Arabi í Katar verður svo á línunni og ræðir um lífið í sólinni. Heimir Hallgrímsson er þjálfari liðsins og Aron EInar Gunnarsson spilar með liðinu.

Liðið mætti Al-Sadd, besta liði Katar á dögunum en Aron Einar gat ekki spilað leikinn. Hann meiddist í upphitun en Al-Arabi var grátlega nálægt því að vinna leikinn.

Ég get alveg sagt það við íslenskan fjölmiðil að ef Aron Einar Gunnarsson hefði verið inni á vellinum, þá hefðum við lokað þessum leik,“ segir Freyr í þætti kvöldsins. Al-Arabi var með 2-1 forystu þegar 90 mínútur voru komnar á klukkuna en Al-Sadd skoraði tvö mörk í uppbótartíma og stal sigrinum.

Aron hafði fest í hálsinum í upphitun

„Hann festist í hálsinum, hann er samt alltaf með sinn eigin kodda á hótelinu. Hann festist í upphitun, Aron er hrikalega mikilvægur fyrir okkur og er í þrusu standi. Við finnum mjög mikið fyrir því þegar hann er ekki með,“ sagði Freyr um landsliðsfyrirliðann.

Í lok þáttar verður það svo Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður á Fréttablaðinu sem kemur og ræðir stöðu Liverpool.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“
433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“
433Sport
Í gær

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United

Klásúla í samningi Bruno í sumar – Getur farið ódýrt frá United
433Sport
Í gær

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“

Blönduðu sér í umræðu síðustu daga – „Ég er hrifinn af þessu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ronaldo sendi væna sneið á meðan hann var í miðju viðtali

Ronaldo sendi væna sneið á meðan hann var í miðju viðtali
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“

Segja milljónamæringana á Akranesi engu hafa skilað í vor – „Gísli á að vera þeirra Aron Sig“