fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
433Sport

Klara Bjartmarz sendi vinum sínum yfirlýsingu – „Síðustu dag­ar hafa verið erfiðir“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 1. september 2021 20:43

Klara Bjartmarz framkvæmdarstjóri fyrrum framkvæmdarstjóri ©Anton Brink 2021

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Greint var frá því í dag að Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, væri komin í ótímabundið leyfi en  ástæða fyrir leyfinu var ekki gefin upp. Áður en sagt var frá því að Klara væri komin í leyfi höfðu margir krafist þess að hún hætti sem framkvæmdastjóri KSÍ en allir stjórnarmeðlimir sambandsins sögðu af sérí byrjun vikunnar.

Klara hefur ekki rætt við fjölmiðla í dag um leyfið en hún sendi vinum sínum yfirlýsingu í færslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni. Mbl.is greindi frá og birti færsluna sem um ræðir en í henni segir Klara meðal annars að síðustu dagar hafi verið erfiðir. Þá segir hún að allir sem þekki hana viti fyrir hvað hún stendur og að „í öllu þessu“ hafi ýmislegt mátt fara betur.

Þá segist hún styðja þolendur, alltaf og alls staðar og að enginn skuli efast um það. Að lokum þakkar hún fyrir kveðjur og stuðning sem hún hefur fengið en hún segist meta það mikils. Hún botnar svo færsluna með orðunum: „Sjáumst fljótlega“.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlýsinguna sem Klara birti í heild sinni:

„Kæru vin­ir.

Eins og sjá má í frétt­um þá er ég kom­in í leyfi.
Síðustu dag­ar hafa verið erfiðir.
All­ir sem þekkja mig vita fyr­ir hvað ég stend.
Ekki spurn­ing að í öllu þessu mátti ým­is­legt bet­ur fara.

Ég styð þolend­ur, alltaf allsstaðar.
Um það skal eng­inn ef­ast.

Takk fyr­ir all­ar kveðjurn­ar og stuðning­inn.
Ég met það mik­ils.
Sjá­umst fljót­lega.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

United að sækja sér þrjá milljarða í aukatekjur

United að sækja sér þrjá milljarða í aukatekjur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Mbappe var mjög reiður þegar Alonso var rekinn – Sakaði leikmenn um að grafa undan honum

Mbappe var mjög reiður þegar Alonso var rekinn – Sakaði leikmenn um að grafa undan honum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

PSG komið í úrslit annað árið í röð – Ekki sama flugeldasýning og í fyrri leiknum

PSG komið í úrslit annað árið í röð – Ekki sama flugeldasýning og í fyrri leiknum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Victoria svarar fyrir ásakanir sem hún og Beckham hafa mátt þola – „Það var aldrei ætlunin að búa til vörumerki“

Victoria svarar fyrir ásakanir sem hún og Beckham hafa mátt þola – „Það var aldrei ætlunin að búa til vörumerki“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skora á félög landsins – „Besta forvörnin“

Skora á félög landsins – „Besta forvörnin“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Wenger segir að þess vegna hafi Arsenal unnið í gær

Wenger segir að þess vegna hafi Arsenal unnið í gær
433Sport
Í gær

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina
433Sport
Í gær

Svona er lið umferðarinnar – KR á flesta fulltrúa

Svona er lið umferðarinnar – KR á flesta fulltrúa