fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Ásökun á hendur Ronaldo um hrottalega nauðgun dregin fram í sviðsljósið – „Ég hélt fyrir leggöngin mín“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 1. september 2021 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enskir fjölmiðlar og fleiri rifja upp málefni Cristiano Ronaldo er tengjast ásökunum um nauðgun. Tilefnið er endurkoma Cristiano Ronaldo til Manchester United. Kathryn Mayorga er nafn sem fáir höfðu heyrt en hún steig fram í ítarlegu viðtali við Spiegel árið 2018 og ræddi um nauðgun sem hún sakar Cristiano Ronaldo, einn besta knattspyrnumann allra tíma um.

Mayorga segir að Ronaldo hafi nauðgað sér árið 2009, atvikið á að hafa átt sér stað í Las Vegas. Ronaldo hefur alltaf hafnað sök og aðilar tengdir honum ítrekað það.

Þar var Ronaldo í sumarfríi með vinum sínum áður en hann samdi við Real Madrid og varð dýrasti knattspyrnumaður í heimi. Lýsingarnar frá Mayorga eru afar óhugnanlegar en þar fer hún yfir málið í öllum smáatriðum. Hún skrifaði undir bréf þess efnis um að tjá sig aldrei um málið, fyrir það fékk hún talsverðar fjárhæðir.

Atvikið á að hafa átt sér stað þann 12. júní árið 2009, Mayorga var 25 ára á þeim tíma og vann við það að lokka gesti inn á skemmtistað. Þar hitti hún Ronaldo, á Rain skemmtistaðnum.

Þau fóru síðan á hótelið þar sem Ronaldo dvaldi og þar á hin meinta nauðgun að hafa átt sér stað. Ronaldo hefur alltaf neitað sök en það eina sem er ljóst er að hann greiddi Mayorga 375 þúsund dollara til að segja ekki orð. Nú þegar hún hefur tjáð sig ber henni að endurgreiða Ronaldo alla þessa upphæð.

Mayorga segir að #MeeToo herferðin hafi orðið til þess að henni langað að tala. Hún hafi séð margar sögur og tengt við þær.

,,Hann er virkilega frægur og ég var smeyk, hrædd um viðbrögðin. Ég skrifaði undir þetta skjal því ég ætlaði ekki að vera í sviðsljósinu,“ sagði Mayorga.

,,Lögfræðiteymi Ronaldo reyndi að drepa þetta, ég drakk smá kampavín þetta kvöld. Ég var í aðhaldi.“

,,Hann gaf mér drykk og kynnti mig fyrir bróður sínum og öllum vínum sínum. Við spjölluðum smá og svo gaf ég honum símanúmerið mitt og fór.“

,,Ég var ný kominn út þegar ég fékk skilaboð frá Ronaldo um að koma í annað partý svo ég fór með vinkonu minni. Við biðum í andyrri hótelsins þegar þeir segja að partýið sé búið. Við fórum með þeim en ég dróg Jordan, vinkonu mína til hliðar og sagði henni að við myndum taka eina mynd af okkur og fara svo. Það var frábært útsýni þarna.“

,,Þetta voru sætir strákar en klukkan var mikið og ég átti að fara í myndatöku um morguninn, ég vildi ekki fara í heita pottinn.“

Mayorga kveðst hafa farið inn á klósett til að skipta um föt þegar Ronaldo gekk til hennar. Limur hans hafi verið kominn út úr buxunum.

,,Hann grátbað mig í 30 sekúndur að snerta liminn sinn, þegar ég neitaði því. Þá bað hann mig um að totta sig, ég hlóg að honum. Ég hélt að þetta væri grín. Hann sagðist leyfa mér að fara ef ég myndi kyssa hann, ég sagðist kyssa hann en ekki snerta liminn hans. Kossinn gerði hann enn æstari og hann fór að vera mjög ágengur, hann reyndi að snerta mig en ég ýtti honum frá mér og sagði nei.“

Hún segir að vinkona sín hafi komið inn og allt hafi róast, hún hélt að allt væri búið. ,,Hann dróg mig inn í herbergi, ég var ekki hrædd. Ég hélt að honum væri ekki alvara og sagði honum að ekkert myndi gerast.“

,,Ég snéri mér frá honum, hann reif í nærbuxurnar mínar. Ég reyndi að fara í burtu og hélt fyrir leggöngin mín. Hann stökk á mig.“

Mayorga heldur því fram að Ronaldo hafi nauðgað sér í endaþarminn, án smokks og ekki notað sleipiefni. ,

,,Eftir að hann nauðgaði mér, þá leyfði hann mér ekki að fara. Hann kallaði mig elskuna sína, hann baðst afsökunar. Hann sagðist vera góður strákur fyrir utan eitt prósent.“

,,Ég hélt að hann væri með AIDS og bað hann um að segja mér ef svo væri, hann sagði að hann væri íþróttamaður og að hann væri prófaður á þriggja mánaða fresti. Það væri ekkert að honum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur

Nýr þáttur af Íþróttavikunni kominn út – Axel Óskar er gestur
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök

Leikmaður United ákærður fyrir tvö brot – Mætti fyrir dómara í dag en neitar sök
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“

Lögreglan hefur heimsótt heimili hans fjórum sinnum á þremur dögum – „Velkomin til Norður-Kóreu“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum
Hartman í Val
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?

Svona hafa síðustu leikir Stjörnunnar og Vals farið – Hvað gerist í kvöld?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast

Carlo Ancelotti brast í grát þegar þetta var að gerast
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir

Enska úrvalsdeildin segir skilið við það sem Klopp hefur talað fyrir
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta

Leikmaður Arsenal talar ekkert við Arteta
433Sport
Í gær

Ríkharð svaraði kallinu – Sjáðu gjörbreytt útlit hans

Ríkharð svaraði kallinu – Sjáðu gjörbreytt útlit hans
433Sport
Í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær

De Bruyne setti met sem hann hefði heldur viljað sleppa í gær