
Andy Robertson, bakvörður Liverpool, virtist sárkvalinn eftir samstuð við leikmann Athletic Bilbao í æfingarleik liðanna í dag.
Robertson kom af velli í hálfleik og óvíst er hversu alvarleg meiðslin eru en atvikið leit illa út. Robertson sneri upp á ökklann og var síðar borinn af velli af sjúkraliðum Liverpool. Owen Beck kom inn á í hans stað.
Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.
Andy Robertson sending me into a panic with this…hope he’s alright! #Robertson #LFC pic.twitter.com/Z5pz1KOgS2
— Pritch (@Pritch533) August 8, 2021