fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Freyr Alexandersson staddur í Danmörku í viðræðum

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 21. júní 2021 08:27

Freyr Alexandersson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Freyr Alexandersson fyrrum aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins er þessa stundina staddur í Danmörku í viðræðum við félag þar í landi. Þetta herma öruggar heimildir 433.is.

Freyr flaug af landi brott um helgina en samkvæmt sömu heimildum leikur umrætt félag í næst efstu deild þar í landi.

Freyr lét af störfum sem aðstoðarþjálfari Al-Arabi í maí þegar Heimir Hallgrímsson lét af störfum á sama tíma. Freyr hefur síðustu daga og vikur átt samtal við danska félagið en viðræður hafa þokast áfram og flaug Freyr út um helgina.

Kjaftasögur hafa verið á kreiki um að Freyr gæti komið til greina sem næsti þjálfari FH en litlar líkur eru á því. FH hefur aðeins náð í eitt stig í síðustu fimm leikjum og er pressa á Loga Ólafssyni þjálfara liðsins.

Það kemur í ljós á allra næstu dögum hvort Freyr taki við danska félaginu en fleiri félög hafa sýnt honum áhuga samkvæmt sömu heimildum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana

Nefna leiðir sem Ísland getur farið til að særa Evrópumeistarana
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi

Svona er tölfræði Íslands gegn Englandi
433Sport
Fyrir 2 dögum
Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli

Fer til Tottenham ef liðið bjargar sér frá falli
433Sport
Fyrir 2 dögum

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“

Karólína staðráðin í að leyfa þessu ekki að gerast – „Yrði mjög sorglegt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Fyrir 2 dögum

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést

Talaði fallega um lífið sem hann hafði átt nokkrum dögum áður en hann lést