fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

,,Þeir þurfa sennilega að tilkynna breytingu á heimilisfangi“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 18. júní 2021 21:46

Ólafur Kristjánsson er þjálfari Þróttara. Mynd / Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Kristjánsson, knattspyrnuþjálfari, var sérfræðingur í þættinum ,,EM í dag“ á Stöð 2 Sport í kvöld. Þar ræddi hann leik Englands og Skotlands. Hann var ekki hrifinn af leik þess fyrrnefndu.

Leiknum í kvöld lauk með markalausu jafntefli. Þeir ensku áttu ekki sinn besta dag og Skotar náðu í mikilvægt stig.

Það er alltaf mikil pressa á enska landsliðinu á stórmótum. Það er talað um að ef Englendingar vinni stórmót muni fótboltinn ,,koma heim.“

Ólafur telur ekki miklar líkur á því að það gerist eftir að hafa séð leik enska liðsins í kvöld.

,,Viðar (Örn Kjartansson) var að tala um að fótboltinn væri vonandi á leiðinni heim. Kannski hef ég haft einhverja von um það líka að hann væri á leiðinni heim en þeir þurfa sennilega að tilkynna breytingu á heimilisfangi vegna þess að það sem Englendingarnir komu með miðað við þær væntingar sem við höfðum til þeirra var ekki nógu gott,“ sagði Ólafur í ,,EM í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim

Breiðablik sagt leggja mikið á sig til að fá Hólmbert Aron heim
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið