ZDF í Þýskalandi segir að Christian Eriksen hafi beðið leikmenn um að halda leik Danmerkur og Finnlands áfram.
Mjög drungalegt atvik kom upp í leik liðanna fyrr í dag á Evrópumótinu sem nú stendur yfir. Christian Eriksen féll til jarðar og það þurfti að beita skyndihjálp.
Það var lítið um að vera þegar Eriksen féll til jarðar og fljótt kom í ljós að um eitthvað alvarlegt væri að ræða. Sjúkrastarfsmenn mættu á staðinn og beittu hjartahnoði.
Til mikillar hamingju er leikmaðurinn nú vaknaður á sjúkrahúsi. Hann getur andað og talað.
Samkvæmt ZDF vildi Eriksen sjálfur að leik yrði haldið áfram. Hann átti samtal við liðsfélaga sína í gegnum Facetime. Þar sagðist honum líða betur.
German broadcaster @sportstudio reporting that Eriksen asked the players to continue.
— Raphael Honigstein💙 (@honigstein) June 12, 2021
Christian Eriksen had a Facetime call with his teammates from the hospital and asked them to play the game tonight, as “he feels better now”, @sportstudio just reported. 🇩🇰❤️ #prayforEriksen
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 12, 2021