fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
433Sport

Hjartnæmt fagn Lukaku – ,,Ég elska þig Chris“

Helgi Sigurðsson
Laugardaginn 12. júní 2021 19:29

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Romelu Lukaku var með falleg skilaboð til Christian Eriksen er hann fagnaði marki sínu gegn Rússum á Evrópumótinu í dag.

Mjög drungalegt atvik kom upp í leik Finnlands og Danmerkur á mótinu. Christian Eriksen féll til jarðar og það þurfti að beita skyndihjálp.

Það var lítið um að vera þegar Eriksen féll til jarðar og fljótt kom í ljós að um eitthvað alvarlegt væri að ræða. Sjúkrastarfsmenn mættu á staðinn og beittu hjartahnoði.

Það kom svo í ljós síðar, til mikillar hamingju, að Eriksen væri vaknaður eftir að hafa verið fluttur á sjúkrahús.

Lukaku skoraði mark Belga í leik sem nú stendur yfir gegn Rússlandi. Hann fagnaði með því að fara upp að myndavél og segja ,,Chris, Chris! Ég elska þig!“ Leikmennirnir spila saman hjá Inter á Ítalíu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Nú líklegast að hann fari til Spánar

Nú líklegast að hann fari til Spánar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði

Antony rýfur loks þögnina og útskýrir það sem hann gerði
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur

Selfoss lánar Gary Martin til Ólafsvíkur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni skýtur fast á Antony
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“

Hlakkar til að fylgjast með uppgangi John – „Það er ekkert skemmtilegra“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“

Katrín myndi vilja bjóða Jurgen Klopp á Bessastaði – „Hann er miklu meiri stemningsmaður en ykkar maður“