

Real Madrid á Spáni hefur aldrei byrjað eins illa í Meistaradeild Evrópu og á þessu tímabili.
Real þekkir það vel að vinna deild þeirra bestu og unnu keppnina til að mynda þrisvar undir stjórn Zinedine Zidane.
Gengið í ár hefur hins vegar verið slakt og er Real með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina.
Fyrst tapaði liðið sannfærandi 3-0 gegn Paris Saint-Germain og gerði svo 2-2 jafntefli við Club Brugge í gær.
Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Real tekst ekki að vinna einn af fyrstu tvo leikjum sínum í keppninni.