fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Aroni Einari og félögum boðin áfallahjálp: Sumir óttast að fljúga

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 30. janúar 2019 12:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan í Bretlandi gaf það út á fimmtudaginn að hætt væri að leita að framherjanum Emiliano Sala og flugmanninum Dave Ibbotson.

Sala og Ibbotson voru um borð í flugvél í síðustu viku sem hvarf skyndilega á leið sinni frá Nantes til Cardiff. Eftir 72 klukkutíma leit þá gafst lögreglan upp sem varð til þess að fjölskylda Sala bað almenning um hjálp.

Fjölmargir knattspyrnumenn hafa kallað eftir því að leitinni verði haldið áfram og þar á meðal Lionel Messi, leikmaður Barcelona.

Um helgina tókst að safna 300 þúsund evrum sem eru meira en 30 milljónir króna. Leit fór aftur af stað í fyrradag. Leikmenn eins og Demaray Gray hjá Leicester, Ilkay Gundogan hjá Manchester City og Corentin Tolisso hjá Bayern Munchen hafa styrkt málefnið.

Þessi tíðindi hafa haft mikil áhrif á leikmenn Cardiff, Sala hafði skrifað undir hjá félaginu en átti eftir að mæta á sína fyrstu æfingu. Hann var á leið til Wales þegar vélin hvarf.

,,Við ferðumst mikið með flugvél og þessa stundina eru leikmenn að hugsa um hvort þeir vilji ferðast þannig eða ekki,“ sagði Sol Bamba leikmaður félagsins um málið.

Leikmenn Cardiff eru harmi slegnir en liðið tapaði gegn Arsenal í gær, fyrsti leikurinn eftir að Sala hvarf.

,,Þetta hefur haft mikil áhrif á okkur, þessi harmleikur. Stjórinn (Neil Warnock) hefur verið góður við okkur, hann hefur fengið inn fólk sem við getum talað við, ef menn vilja létta af sér.“

,,Þetta hefur verið mjög erfið vika fyrir leikmennina, félagið og alla borgina. Leitin af Emiliano heldur áfram, ef það er líf, þá er von. Við vonum að það finnist eitthvað gott fyrir fjölskyldu hans.“

,,Ég er vinur Emiliano því við erum með sama umboðsmanninn, ég talaði við hann áður en hann skrifaði undir. Það eru allir sorgmæddir, við söknum hans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta
433Sport
Í gær

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð
433Sport
Í gær

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra

Úr dönsku úrvalsdeildinni í Vestra