fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
433Sport

Sjáðu ótrúlegt væl í Jose Mourinho: Skautar framhjá staðreyndum

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 20. janúar 2019 10:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jose Mourinho fyrrum stjóri Manchester United sendir lúmskar pillur þessa dagana á sitt gamla félag, Mourinho var rekinn í desember.

Mourinho hefur verið í viðtölum í Katar hjá Bein Sport en þar fær hann góðar greiðslur fyrir að tala.

Mourinho má hins vegar lítið nefna United en sendir pillur um hitt og þetta, ef hann talar of mikið skerðast greiðslur hans frá United.

Í gær fór Mourinho að ræða um það að Jurgen Klopp, stjóri Liverpool og Pep Guardiola, stjóri Manchester City myndu fá að kaupa það sem þeir vildu til félagsins. Hann telur sig ekki hafa fengið það hjá United.

Mourinho fékk hins vegar að eyða rosalegum fjárhæðum í leikmenn og það í flestar stöður, kaup hans voru hins vegar mörg misheppnuð. Nægir þar að nefna Eric Bailly, Fred, Alexis Sanchez og fleiri.

Leikmenn sem Mourinho fékk til United:
Eric Bailly
Zlatan Ibrahimovic
Paul Pogba
Henrikh Mkhitaryan
Victor Lindelof
Romelu Lukaku
Nemanja Matic
Alexis Sanchez
Fred
Diogo Dalot
Lee Grant

Ágætis magn af leikmönnum en árangur Mourinho ekki nógu góður, vælið í honum má sjá hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta eru vinsælustu skiptingarnar í Fantasy – Flestir losa sig við stjörnu Liverpool

Þetta eru vinsælustu skiptingarnar í Fantasy – Flestir losa sig við stjörnu Liverpool
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Útskýrir ákvörðun sína að flytja til Dubai með fjölskylduna – Meira öryggi og betra nám fyrir börnin

Útskýrir ákvörðun sína að flytja til Dubai með fjölskylduna – Meira öryggi og betra nám fyrir börnin
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arsenal sagt ætla að skoða enska landsliðsmanninn vegna meiðsla Havertz

Arsenal sagt ætla að skoða enska landsliðsmanninn vegna meiðsla Havertz
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Vilja Jackson en Chelsea verður að lækka verðmiðann

Vilja Jackson en Chelsea verður að lækka verðmiðann
433Sport
Í gær

Arsenal hoppar inn og er að ná að stela Eze af Tottenham – Bjóða Palace betri pakka

Arsenal hoppar inn og er að ná að stela Eze af Tottenham – Bjóða Palace betri pakka
433Sport
Í gær

Vonar að enginn hlusti á KSÍ og að allir fái sér vel í glas á föstudag – „Hvaða þvæla er þetta“

Vonar að enginn hlusti á KSÍ og að allir fái sér vel í glas á föstudag – „Hvaða þvæla er þetta“