fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433

Verður allt vitlaust ef Solskjær fær ekki starfið?

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 25. febrúar 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það fór fram stórleikur á Englandi í gær er lið Manchester United tók á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.

Fyrri hálfleikurinn í gær var ansi undarlegur en United þurfti að skipta þremur leikmönnum af velli vegna meiðsla. Liðinu tókst þó að enda leikinn með 11 menn á vellinum en Marcus Rashford var tæpur og var í erfiðleikum.

Því miður fyrir áhorfendur var ekki boðið upp á nein mörk í leik gærdagsins en færin voru af skornum skammti. Markalaust jafntefli því niðurstaðan í Manchester sem eru ekki frábær úrslit fyrir þessi lið.

Gary Neville fyrrum fyrirliði félagsins telur að Ole Gunnar Solskjær verði að fá starfið til framtíðar, hann hefur breytt miklu á stuttum tíma og stuðningsmenn félagsins elska hann.

Solskjær er með samning út þessa leiktíð en kemur til greina sem stjóri áfram. ,,Fyrir þremur mánuðum hefði verið öskrað á sóknarleik á Old Trafford ef það væri 0-0 á heimavelli,“ sagði Neville.

,,Það var sungið um Solskjær allan síðari hálfleikinn, andrúmsloftið hefur breyst svakalega.“

,,Hann hefur stuðningsmennina á sínu bandi, stjórnin getur í raun ekki gefið neinum öðrum starfið. Ég held að það verði læti ef það gerist.“

,,Hann er elskaður, það er stuðningur við liðið en Solskjær fær mestan stuðning.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur

Guardiola ætlar sér að fara í frí í heilt ár og tekur ólíklega við félagsliði aftur
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Roy Keane brjálaður yfir því hvernig leikmenn United höguðu sér um helgina – Ósáttur með Bruno

Roy Keane brjálaður yfir því hvernig leikmenn United höguðu sér um helgina – Ósáttur með Bruno
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Staðfest að Enzo Maresca tekur við keflinu af Guardiola

Staðfest að Enzo Maresca tekur við keflinu af Guardiola
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Chelsea setur allt á fullt til að fá enska landsliðsmanninn

Chelsea setur allt á fullt til að fá enska landsliðsmanninn
433Sport
Í gær

Lengjudeildin: Öflugur sigur HK gegn Njarðvík – Dramtískur sigur Fylkis

Lengjudeildin: Öflugur sigur HK gegn Njarðvík – Dramtískur sigur Fylkis
433Sport
Í gær

Arsenal hænuskrefi frá titlinum eftir nauman sigur á Burnley

Arsenal hænuskrefi frá titlinum eftir nauman sigur á Burnley