

Santi Cazorla, miðjumaður Arsenal er í Evrópudeildarhópi félagsins fyrir 32-liða úrslit keppninnar.
Þetta eru óvæntar fréttir enda hefur hann ekki spilað síðan í október 2016.
Cazorla hefur verið afar óheppinn með meiðsli og var hann heppinn að halda fætinum á síðasta ári eftir slæma sýkingu.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal hefur ekki viljað gega það upp nákvæmlega hvenær Cazorla mun snúa aftur á knattspyrnuvöllinn.
Það gæti hins vegar gerst á næstu mánuðum þar sem að franski stjórinn gerir væntanlega ráð fyrir því að nota Cazorla í Evrópudeildinni.