

Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool hefur áhyggjur af nýjasta leikmanni Liverpool, Virgil van Dijk.
Miðvörðurinn varð dýrasti leikmaður í sögu félagsins þegar Liverpool keypti hann á 75 milljónir punda í janúarglugganum.
Hann hefur farið ágætlega af stað en hann leit alls ekki vel út í 3-0 tapi liðsins gegn WBA í enska FA-bikarnum á dögunum.
„Hann á eftir að reynast Liverpool mjög vel held ég, þótt hann hafi ekki byrjað neitt sérstaklega,“ sagði Carragher.
„Hann þarf að koma sér í almennilegt leikform og missa nokkur kíló. Hann lítur út fyrir að vera of þungur. Kannski hefur það eitthvað með það að gera að hann missti af undirbúningstímabilinu,“ sagði hann að lokum.