fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fókus

Ljóstraði Björgólfur upp um kaupin á WOW í ágúst? Fór í kleinu í Kastljósi – Sjáðu myndbandið

Fókus
Mánudaginn 5. nóvember 2018 14:13

Samsett mynd/Skjáskot af vef RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú saga gengur nú á samfélagsmiðlum að það hafi staðið til mánuðum saman að Icelandair myndi kaupa WOW air, sönnunargögnin eru af skornum skammti en til eru þeir sem lesa það úr svipbrigðum Björgólfs Jóhannssonar, þáverandi forstjóra Icelandair, þegar hann var spurður um hugsanlega sameiningu í viðtali í Kastljósi í ágúst síðastliðnum.

Notandi á Twitter birti færslu um málið í ágúst og sagði að Björgólfur hefði „roðnað eins og 10 ára strákur“ þegar hann var spurður um mögulegan samruna.


Nú þegar búið er að tilkynna um kaupin endurbirtir hann tístið og segir: „Engin les svokallað „body-language“ jafn vel og ég.“

Það vekur athygli að Björgólfur sagði að hann efaðist um að Samkeppniseftirlitið myndi heimila slíkt, en eins og staðan er núna á WOW air að verða sjálfstætt dótturfélag Icelandair, niðurstaðan á að liggja fyrir eftir rúmar þrjár vikur.  Þetta sagði Björgólfur þegar hann var spurður um möguleikann á að sameina Icelandair og WOW:

(Björgólfur Hikar) „Sko. (Hikar) Ég náttúrulega bara veit það ekki,“ sagði hann og hló. „Ég hef ekkert, sko, mikla trú á því. Í fyrsta lagi reikna ég ekki með því að það sé heimilt. Ég held að starfsmenn ákveðinnar skrifstofu í Borgartúninu hafi skoðun á því ef að það kæmi til tals. Ég sé það ekki alveg fyrir mér.“

Hér má sjá spurninguna og viðbrögð Björgólfs. Sjá á sjöundu mínútu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ekkert drepur kynlöngunina hraðar en þetta – Björguðu sambandinu með dramatískri ákvörðun

Ekkert drepur kynlöngunina hraðar en þetta – Björguðu sambandinu með dramatískri ákvörðun
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah

„Áhyggjufullur og með uppköst í viku“ fyrir viðtal hjónanna við Oprah
Fókus
Fyrir 6 dögum

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu

Regína Ósk og Svenni ljóstra upp nýjasta afrekinu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar

Helgi kannaðist fljótt við sig sem „góðkunningja“ lögreglunnar
Fókus
Fyrir 1 viku

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone

Afhjúpar hvernig hún notaði svamp í kynlífssenu með Emmu Stone
Fókus
Fyrir 1 viku

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu

Bað stórleikarann eiginmann sinn um tvennt eftir brjóstakrabbameinsgreiningu