fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

„Hefðum við náð að skora fyrsta markið hefði þetta verið geggjuð taktísk breyting“

Einar Þór Sigurðsson
Laugardaginn 23. júní 2018 09:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir tapleik Íslands gegn Nígeríu í gær veltu ýmsir því fyrir sér hvort Heimir Hallgrímsson hefði frekar átt að stilla upp í sama leikkerfi og hann gerði gegn Argentínu. Þá var Alfreð Finnbogason einn frammi, Gylfi Þór Sigurðsson þar fyrir aftan og Emil Hallfreðsson og Aron Einar Gunnarsson á miðjunni.

Í leiknum í gær ákvað Heimir að stilla upp í leikkerfið 4-4-2 með þá Jón Daða Böðvarsson og Alfreð Finnbogason í fremstu víglínu og þá Gylfa Þór Sigurðsson og Aron Einar á miðjunni. Ísland tapaði 2-0 og söknuðu margir þess að sjá ekki Emil Hallfreðsson í liðinu, en hann átti góðan leik gegn Argentínu.

Þegar Heimir var spurður að því í morgun hvort hann vildi að hann hefði gert eitthvað öðruvísi, til dæmis hvað varðar uppstillingu sagði hann:

„Alltaf þegar þú tapar leik þá hugsar maður hvað maður hefði átt að gera öðruvísi. Hefðum við náð að skora fyrsta markið hefði þetta verið geggjuð taktísk breyting, þannig er bara fótboltinn. Þú gerir eitthvað og stundum gengur það upp og stundum ekki og þannig er það bæði í fótbolta og í lífinu. Þú verður að taka ákvarðanir. Þessi leikaðferð hefur hentað okkur mjög vel oft áður. Hún gekk ekki upp í gær og þannig er bara lífið.“

Heimir segir að honum hafi gengið ágætlega að sofna í gærkvöldi og sagðist hann hafa horft á leikinn gegn Nígeríu um það bil tvisvar sinnum eftir að flautað var til leiksloka í gær. Aðspurður hvernig leikurinn horfir við honum nú, tæpum sólarhringi eftir að honum lauk, sagði Heimir:

„Bara eins og alltaf, þegar maður horfir á leik aftur sem maður tapar þá er upplifunum betri þegar maður horfir á hann í annað sinn heldur en þegar maður upplifði hann á vellinum. Já, já. Þetta var leikur sem var smá kaflaskiptur. Fyrri hálfleikur var góður og við fórum með það leikplan að þeir myndu opna sig þegar leið á leikinn ef þeir næðu ekki að skora. En svo ná þeir þessu marki í upphafi síðari hálfsleiks og það breytir leikmyndinni. Við þurfum að koma framar á völlinn og þá erum við að spila leikinn upp í hendurnar á Nígeríumönnum, þeirra styrkleiki eru skyndisóknir og þannig gátu þeir spilað upp á sinn styrkleika sem var vont fyrir okkur,“ sagði Heimir og bætti við nígeríska liðið hefði höndlað aðstæðurnar í gær betur en íslenska liðið:

„Ef við leggjum saman þessi tvö lið þá eru þeir líklega fljótari en við að hlaupa og réðu betur við aðstæðurnar eins og þær voru í gær. Leikmyndin var þeim í hag og auðvitað var heitt sem er eitthvað sem eru vanari. Þetta spilaðist upp í hendurnar á þeim.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ofarlega á blaði á Anfield en verður rándýr

Ofarlega á blaði á Anfield en verður rándýr
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Stjóri erkifjenda Arsenal skilur ekkert í umræðunni eftir leik þeirra við West Ham

Stjóri erkifjenda Arsenal skilur ekkert í umræðunni eftir leik þeirra við West Ham
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Samningi hjá liðsfélaga Alberts rift eftir hörmungar tímabil

Samningi hjá liðsfélaga Alberts rift eftir hörmungar tímabil
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Viðræður við Mourinho að klárast – Þess vegna vilja þeir fá hann

Viðræður við Mourinho að klárast – Þess vegna vilja þeir fá hann
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Chelsea á fullu að reyna að sannfæra Alonso – Fimm önnur nöfn á blaði

Chelsea á fullu að reyna að sannfæra Alonso – Fimm önnur nöfn á blaði
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Liverpool eitt af þremur félögum sem vilja kaupa enska landsliðsmanninn í sumar

Liverpool eitt af þremur félögum sem vilja kaupa enska landsliðsmanninn í sumar