fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Ný heimildarmynd endurlífgar umræðuna um andlát Heather O‘Rourke – Hvíldi bölvun á henni?

Pressan
Sunnudaginn 8. mars 2026 21:30

Heather O'Rourke

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heather O‘Rourke varð heimsþekkt fyrir leik í hryllingsmyndinni „Poltergeist“. Hún lék Carol Anne Freeling. Heather lést 1988, aðeins 12 ára.

Dánarorsök hennar var meðfæddur sjúkdómur í þörmunum. Þrátt fyrir það hafa kenningar verið á lofti um að bölvun hafi hvílt á henni vegna leiks hennar í „Poltergeist“.

Heather lést áður en þriðja kvikmyndin í myndaflokknum var tekin til sýninga í kvikmyndahúsum. Það kynti síðan enn frekar undir umræðunni um að bölvun hvíldi á kvikmyndunum að þrír aðrir leikarar létust á frekar skömmum tíma. Þetta voru þau Dominique Dunne, Will Sampson og Julian Beck.

Í nýrri heimildarmynd „Heather O‘Rourke: She Was Here“, sem kom út í febrúar, ræða fjölskyldur, ættingjar og leikarar úr „Poltergeist“ um hörmungarnar, sem tengjast myndunum, og þá sérstaklega andlát Heather.

Í heimildarmyndinni ræðir systir Heather um hvernig samfélagsmiðlar hafa kynt undir orðrómunum um bölvun og gagnrýnir þá sem tjá sig um þetta án þess að vita hvað gerðist.

„Eitt af því sem við höfum tekið sérstaklega eftir að undanförnu eru þessar athugasemdir, sem hafa verið skrifaðar árum saman á heimasíður og annars staðar, þar sem er talað um Heather. Allir halda að þeir viti meira en mamma okkar og við,“ segir hún í heimildarmyndinni.

Móðir þeirra systra, Kathleen, kemur einnig fram í heimildarmyndinni og tjáir sig um hina meintu „Poltergeistbölvun“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu

Óvæntur glaðningur fylgdi gjafasæðinu
Pressan
Í gær

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu
Pressan
Í gær

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
Pressan
Í gær

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar

Svona er hægt að sjóða kartöflur hraðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti

Svona lengi er hægt að geyma kjöt í frysti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur

Læknir varar við vinsælum morgunmat – Getur verið heilsunni hættulegur
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað