
Margir höfðu reiknað með að Tesla eða kínverska BYD myndi verma efsta sætið en það er öllu hefðbundnari bíll sem seldist mest á síðasta ári. Það var Toyota RAV4. Rúmlega 2,1 milljón eintaka seldist af þessari tegund á síðasta ári. Presse-Citron skýrir frá þessu.
RAV4 er blendingsbíll sem ekki þarf að hlaða, hann hleður sig sjálfur og blandar sem notkun bensínvélar og rafmagns. Þessi tækni höfðar til margra bílkaupenda sem vilja minni bensíneyðslu en um leið vera óháðir hleðslustöðum.