
Þau hittust eftir að hafa skipst á skilaboðum í tvær vikur í gegnum Tinder. Hún hafði spurt hann allra helstu spurninganna: „Ertu giftur?“, „Áttu börn?“ og „Býrðu einn?“
Svörin voru alltaf á sömu leið, hann var fráskilinn, einhleypur og barnlaus.
Þegar hann bauð henni loks heim, lét hún slag standa og fór heim til hans enda virtust þau ná vel saman.
Allt gekk vel þar til hún þurfti að fara á klósettið og spurði hann hvort það væri í lagi. Hún tók eftir því að hann virtist aðeins hikandi áður en hann sagði já.
Þegar hún kom inn á baðherbergið áttaði hún sig á stöðu mála og vissi um leið að hún væri á heimleið.
Ástæðan var að baðherbergið var augljóslega ekki baðherbergi einhleyps karlmanns. Það var andlitsfarði þar inni, ýmsar hárvörur og það sem var eiginlega besta sönnunin, tveir tannbursta í tannburstaglasinu. Annar var bleikur.
Haley birti síðan myndband á TikTok þar sem hún skýrði frá þessu og sagði meðal annars: „Hann er sköllóttur svo hann hefur engin not fyrir allar þessar hárvörur.“
Þegar hún kom fram aftur var hún ekki í skapi til að halda stefnumótinu áfram og kom sér beint að efninu og spurði hann út í það sem var inni á baði.
Hann reyndi ekki að ljúga og sagði: „Já, fyrirgefðu. Ég hefði átt að segja þér það. Ég er kvæntur.“
Haley var að vonum öskureið og yfirgaf húsið en var harðákveðin í að hér myndi málinu ekki ljúka.
Nokkrum dögum síðar ók hún aftur heim til mannsins til að hitta konuna hans og segja henni frá þessu.