
Expressen segir að dæturnar erfi móður sína og fær hvor um sig sem svarar til um tveggja milljarða íslenskra króna í arf.
Lena greindist með hvítblæði 2003 og hafði það að lokum betur. Hún hafði rætt um veikindin við fjölmiðla og sagði það að vonum hafa verið mikið áfall fyrir hana og Björn þegar hún greindist með sjúkdóminn.
Hún sagði að þau hafi brotnað saman og tekið utan um hvort annað. Þau hafi verið sem lömuð þegar þau gengu út frá lækninum.
Þau voru gift í 41 ár en skildu 2019 en áttu í góðu vináttusambandi eftir skilnaðinn.
Lena var 76 ára þegar hún lést.