fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 13:30

Yevgeni Prigozhin, stofnandi Wagnerhópsins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir að Yevgany Prigohzin, stofnandi Wagnerhópsins, lést í flugslysi 2023 hefur lítið farið fyrir hópnum opinberlega. En þessi málaliðaher hefur ekki lagt upp laupana og nú gegnir hann mikilvægu hlutverki í mörgum Evrópuríkjum.

Þetta sagði Karen Philippa Larsen, nýdoktor hjá Dansk Institut for Internationale Studier, í samtali við Jótlandspóstinn. Hún hefur rannsakað starfsemi hópsins og fjallaði doktorsritgerð hennar meðal annars um hópinn.

Hún sagði að rússneska leyniþjónustan GRU hafi tekið stjórn hópsins yfir. Hópurinn hefur verið við störf í Afríku síðustu árin en það nýjasta sé að nú sé hann notaður til að finna fólk sem er reiðubúið til að fremja skemmdarverk í Evrópu og vinna við að hafa áhrif á skoðanir almennings. „Þetta er hluti af stóru rússnesku fjölþáttastríði,“ sagði hún.

Hún kom síðan með tvö raunveruleg tilfelli þar sem sýnt hefur verið fram á það í réttarhöldum að Wagnerhópurinn hafi komið við sögu.

Fyrra málið er frá Póllandi þar sem tveir menn voru handteknir 2023 og síðan dæmdir fyrir útbreiðslu rússnesks áróðurs með því að líma Wagner-límmiða upp og stunda njósnir. Markmiðið var að skapa félagslegan ótta og fá Pólverja til að trúa að Wagnerhópurinn væri nú þegar starfandi í landinu. Með því átti að sá efasemdarfræjum um getu pólsku leyniþjónustunnar sagði Larsen.

Hitt málið er frá mars 2024 þegar sex menn kveiktu í vörugeymslu í Lundúnum. Þar voru vörur sem áttu að fara til Úkraínu. Meðal annars rafalar og búnaður fyrir Internettengingar. Mennirnir voru ráðnir til starfa í gegnum samfélagsmiðlasíður Wagnerhópsins og fengu sem svarar til um fjögurra milljóna íslenskra króna fyrir vikið. Höfuðpaurinn í Englandi var síðar dæmdur í 17 ára fangelsi.

Mennirnir í Lundúnum áttu allir afbrotaferil að baki og létu freistast af peningunum.

Financial Times segir að nú hafi áherslur Wagnerhópsins færst frá því að reyna að ráða unga Rússa til að fara á vígvöllinn í Úkraínu, til að reyna að fá unga Evrópubúa til að taka að sér ákveðin verkefni gegn greiðslu.

Evrópskar leyniþjónustur eru mjög meðvitaðar um þetta og hefur að sögn Financial Times tekist að koma í veg fyrir margar fjölþáttaárásir sem Wagnerhópurinn hafði skipulagt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Í gær

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Í gær

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld

Prófessor segir að heimurinn sé á leið inn í stórstyrjöld
Pressan
Í gær

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki

Bifvélavirkjar segja þessar fjórar bílategundir sé best að kaupa ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer

Sérfræðingur varar fólk við að steikja beikon í airfryer