
Margir leggja leið sína til hans til að fá ráð varðandi bílakaup og hann liggur ekki á skoðunum sínum.
Hann er ekki mjög hrifinn af frönskum bílum og segir að Renault, Peugeot og Citroen séu oft byggðir á hátt sem gerir viðgerðir á þeim óþarflega tímafrekar.
Magnus Andersson, hjá Visby Bilservice, er sömu skoðunar en hann segir að franskir bílar virki vel þar til eitthvað bilar í þeim. Þegar það gerist, séu bæði greiningin og viðgerðin erfiðari en á mörgum öðrum bílategundum.
Andersson er heldur ekki hrifinn af Land Rover. Hann segir viðgerðir á þeim dýrar og varahlutirnir séu oft mjög dýrir. Carup.se skýrir frá þessu.
Það þarf kannski ekki að koma á óvart að sænsku bifvélavirkjarnir séu hrifnir af Volvo og segi það vera góða bíla sem þoli erfiðar aðstæður vel og að flestir geti fundið módel við sitt hæfi.
Þeir benda bílkaupendum á að skoða aðgengi að verkstæðum, verð á varahlutum og aðgengi að sérfræðingum áður en þeir kaupa bíl.