fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 14:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Diana Sanders fór í siglingu með skemmtiferðaskipinu Carnival Radiance í janúar 2024. Í ferðinni var allt innifalið, þar á meðal áfengi. Á níu klukkustundum drakk hún að minnsta kosti 14 tekílaskot og endaði með að hrynja niður stiga þegar hún yfirgaf einn af börum skipsins. Hún meiddist á baki, marðist mikið, fékk heilahristing og glímir við höfuðverk í kjölfarið.

Sky News segir að Sanders hafi fundist meðvitundarlaus á svæði áhafnarmeðlima. Hún stefndi útgerð skipsins og var málið tekið fyrir í Miami í Flórída. Þar úrskurðaði kviðdómur Sanders í vil og komst að þeirri niðurstöðu að útgerðin hefði sýnt af sér vítaverða vanrækslu.

Lögmaður hennar, Spencer Aronfeld, sagði að það sé mikið mál að takast á við stórfyrirtæki eins og Carnival, sem gerir skipið út. En Spencer sé staðföst og hafi ekki viljað gefast upp.

„Málið sýnir hversu hættulegar pakkaferðir, þar sem drykkir eru innifaldir, eru. Þær hvetja til mikillar áfengisneyslu og eru hvati fyrir illa launaða þjóna til að leggja meiri áherslu á þjórfé en öryggi,“ sagði hann.

Aronfeld hélt því fram fyrir dómi að barþjónar hefðu átt að hætta að afgreiða Sanders með áfengi þegar hún var augljóslega orðin drukkin.

Hann sagði einnig að Carnival „hanni skip sín vísvitandi þannig að áfengisafgreiðslur séu í hverju krók og kima“ til að hámarka gróðann.

Sanders fór fram á 50.000 dollara í bætur en kviðdómurinn úrskurðaði að Carnival þurfi að greiða henni 300.000 dollara í bætur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu