fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Pressan

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

Pressan
Sunnudaginn 26. apríl 2026 13:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Risastór loftsteinn, sem hefur verið nefndur Apophis eftir hinum egypska guði öngþveitis, stefnir hraðbyri að jörðinni og mun fara mjög nærri henni þann 13. apríl 2029.

Bandaríska geimferðastofnunin NASA segir að Apophis muni fara sögulega nærri jörðinni en það sé engin hætta á árekstri að þessu sinni. Hann mun verða nær jörðinni en margir gervihnettir og það verður hægt að sjá hann með berum augum frá austurhluta jarðarinnar, þar á meðal Evrópu.

Apophis er í flokki „hugsanlega hættulegra loftsteina“ sem NASA fylgist náið með. En sem betur fer eru engar líkur á árekstri hans við jörðina okkar næstu 100 árin hið minnsta.

Sky News segir að Evrópska geimferðastofnunin ætli að senda geimfar til að fylgjast með loftsteininum þegar hann þýtur fram hjá okkur.

Hann er að minnsta kosti 450 metrar á lengd, svipað hár og Eiffel turninn.

Þegar hann verður næst jörðinni verður hann í um 32.000 kílómetra fjarlægð. Aldrei fyrr hefur loftsteinn af þessari stærð, sem vísindamenn vissu um fyrir fram, farið svo nærri jörðinni.

NASA segir að þetta verði líklega einstakur atburður í sögu mannkynsins til þessa vegna þess hversu stór loftsteinninn er og hversu nálægt jörðinni hann fer.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi

Fær greiddar bætur eftir að áfengi var borið ótæpilega í hana á skemmtiferðaskipi
Pressan
Í gær

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu